Ætli ég skrifi ekki niður nokkrar línur svona að tilefni þess að
ég hef ekki bloggað síðan í fyrra.. Maður fer svona að komast í
blogggírinn þar sem skólinn er byrjaður og lærdómurinn aðeins
kominn í gang.. By the way gleðilegt ár allir saman
það eru núna
síðustu mínuturnar á póland-ísland og pólland er tveimur mörkum
yfir.. langar ekki að sjá meira
þeir eru nú búnir að standa sig
nokkuð vel og það væri gaman ef að það mundi haldast
Við höfðum það ógó gott á Flórída um jólin og gerðum við ekkert
nema sofa, hanga, liggja í sólbaði, versla og slappa af. very nice
og ég væri sko meira en til í að gera þetta aftur!! mæli eindregið
með þessu, ekkert jólastress og læti bara rólegheit og fínerí
en þar sem nýtt ár er gengið í garð er um að gera að fara rífa sig
upp og vera rosa duglegur.. ætla að vera rosa dugleg að mæta í
skólann (líka þegar ég á að mæta klukkan átta), vera dugleg að
læra, mæta oft og vera dugleg í ræktinni og svo langar mig að taka
upp eitthvað nýtt hobbí. Hef ekki alveg ákveðið hvað það á að vera
en það eru nokkrar hugmyndir á sveimi í hausnum og er ein af þeim
að fara að spila skvass aftur því það er svo geggjað gaman en
vandamálið er bara að þá vantar mig félaga.. spurning um að auglýsa
eftir einum í fréttablaðinu
endilega láta mig vita ef einhverjum
langar með mér.. þetta er svaka stuð og svo brennir maður alveg
þvílíkt í þessu
svo langar mig líka að fara að æfa á hljóðfæri,
hef reyndar langað það mjög lengi en aldrei látið verða að því.
Kannski að maður ætti að skella sér aftur í píanóið
er samt búin
að gleyma öllu
fer þá kannski bara í eitthvað annað þar sem ég
þarf hvort eð er að byrja frá grunni.. jæja það kemur allt í
ljós
Hér eru nokkrar myndir frá flóró

ég og davíð á tröppunum í new york universal

ströndin

þetta voru einu flugeldarnir sem við sáum um áramótin

davíð í universal